top of page

Afþreying

Eyjasigling

 

Sigling út í Drangey er ævintýri líkust enda er eyjan náttúruperla í miðjum Skagafirði. Eyjan er þverhníptur móbergsklettur um 180 metrar á hæð og býður því upp á frábært útsýni yfir allan fjörðinn. Fuglalíf er fjölbreytt í Drangey þótt mest beri þar á svartfuglategundum. Yfir sumarmánuðina bjóðum við upp á daglegar ferðir út í Drangey frá Reykjum. Þetta er ca. fjögurra tíma ferð með siglingu, göngu, fuglaskoðun og oftar en ekki láta selir og hvalir sjá sig á leiðinni. Komdu og njóttu fallegrar náttúru og upplifðu Drangey í allri sinni dýrð.

Sjóstöng

 

Það fátt skemmtilegra en að renna fyrir fisk á fallegum degi. Við bjóðum upp á sjóstangveiði fyrir einstaklinga og hópa. Veiðin hentar fólki á öllum aldri og stutt er á gjöful mið frá Reykjum. Veiðiferðirnar eru frá einni klst og svo eftir samkomulagi og allir geta verið með.

bottom of page